04ágúst
Ok vá ég er lélegur bloggari en ég ætla samt að reyna að hætta ekki alveg.... Ég þarf greinilega að búa til nýja myndasíðu allar myndirnar detta út inná milli nema þær sem eru inná barnalandi og ég nenni ekki að vera að troða öllum myndum þar inn.... veit einhver um góða myndasíðu sem ég get sett allar myndirnar mínar ekki fotki það er handónýtt... En annars var ég búin að lofa einhverri ferðasögu hérna en kíkið bara inná síðunna hennar Aldísar, myndirnar segja meira en orð;) sorry hvað ég skrifa klesst er bara að drífa mig svo mikið
- Unns-
04júlí
Það liggur eiginlega við að mig langi til að hætta að blogga vegna þess að ég er alltaf að gera einhverjar langar færslur og svo ýti ég óvart á e-n takka og þá er allt farið og ég nenni auðvitað ekki að gera allt uppá nýtt , og man ekki helmingin af því sem ég var að segja. It sukks......
Því miður hef ég ekki tíma til að skrifa allt aftur því ég þarf að klára að pakka , erum að fara hringinn á morgun , ætla að vera 11 daga kem svo með ferðasögu þegar við komum heim. Sjáumst
01júní
Núna finnst mér sumarið vera komið, ekki af því að það er svo gott veður
heldur afþví að það er komin júní
En sem betur fer er sumarið bara rétt að byrja...
Hrannar átti afmæli í gær og ég og gaf honum náttbuxur joe boxer
,(er þetta ekki alveg einsog joe boxer kallinn) peysu, og einn síðerma bol og einn polo bol , mamma og pabbi gáfu honum svo sumar buxur, svo veit ég að han fær föt frá mömmu sinni og pabba sem hann má velja sjálfur þannig hann er vel búinn fyrri sumarið og svo á hann gjafakort í smáralind. Honum veitti heldur ekkert af stráknum , hann á ekkert alltof mikið af fötum sem hann notar, en annars á hann helling af fötum en nóg um Hrannar....................................
Pakkinn frá mér
Í tilefni dagsins í gær skelltum við okkur í Bláa Lónið og það var bara mjög fínt, Við fórum svo uppúr þegar okkur leist ekkert lengur á veðrið og svo fengum við okkur líka að borða þar
namminamm
Svo brunuðum við í bæinn til að sækja Aldísi sem var hjá mömmu og pabba einsog vanalega


Kalt 



Í kvöld er enn ein Sdútentsveislan hjá okkur og engin börn
Enn ein pössunin, ég er alveg komin með móral að vera alltaf að láta passa hana
I'm a bad mother
nei djók, þetta hlýtur að vera í lagi ,Svavar og Vaka ætla að passa og hún hlýtur að þekkja þau , þau eru hér svo oft að passa hana eða leika við hana , alltílagi ef að það er sama fólkið 

Sætust


Varð bara að koma með smá myndaseríu af sætustu stelpunni
Það var ekki fleira í bili
Love
Love
Love
Unnur Margrét
29maí
Afmælið okkar Hrannars heppnaðist bara helvíti vel ....Ég var allavega mjög ánægð með kvöldið... Fyrir utan bæinn , við hefðum alveg getað sleppt honum.... En hver haldiði að hafi mætt í afmælið.... eina manneskjan sem átti ekki að komast, vegna þess að hún bara "gat ekki reddað sér fríi í vinnunni"
........ hver önnur en Halldóra Hanna Halldórs. Ég fékk svona smá sjokk því ég var ekki að búast við því að hún myndi mæta eftir allt þetta bull sem hún er búin að vera að segja við mig , en það var BARA GAMAN að fá hana.Hún fór heimí dag og ég náði ða hitta hana aðeins í gærkvöldi fórum í pottinn og spjölluðum og svo náði ég að sjá Anítu sætu aðeins í morgun rétt áður en þær fóru aftur á djúpó, en það er ekki langt í að við förum í heimsókn til þeirra
Annars mættu allir sem við buðum í afmælið og við fengum fullt af flottum pökkum
(myndirnar neðst)
Takk fyrir kvöldið folks
Laugardagurinn var svo bara svona afslöppunardagur eða til 5 allavega... Við vöknuðum frekar snemma þó Aldís væri ekki heima til að vekja okkur , semsagt við notuðum ekki tækifærið og sváfum út heldur vöknuðum og fórum á vespunni og fengum okkur American style. Sunna gisti hjá okkur í sófanum því henni fannst vera of heitt inní herbergi
haha. Við fórum svo í Stúdentsveislu til Lalla frænda klukkan 5.... Namm góði maturunn þar.....Við fórum svo í aðra veislu um kvöldið til Margeirs
sem er vinur hans Hrannars, vorum frekar stutt en Vaka og Svavar pössuðu á meðan, svo restina af kvöldinu chilluðum við bara með þeim að horfa á TV . 
Sunna alltaf jafn hress á morgnanna:)
Á Sunnudaginn fékk ég að sofa lengur og Hrannar fór út að labba með Aldísi svo hitti ég þau þegar ég vaknaði og við löbbuðum niðrá Austurvöll. Um kvöldið borðuðum við svo á Barðó heima hjá ma og pa. Ég kíkti svo á Árshátíð Wilsons um köldið en hún var haldin heima hjá Eyrúnu vinkonu og það var mjög fínt ,geggjaður matur......

Hrannar

Og minns :)
Í gær átti mamma svo afmæli 44 ÁRA og við skelltum okkur mð Aldísi í pössun svo við gætum tekið til við Hrannsi. Það var allt shænííí ....og við fórum og fengum okkur kaffi hjá mömmu og borðuðum þar svo um kvöldið:) Til hamingju með afmælið mútta mín

Ég verð nú bara að hrósa henni móður minni og segja að hún lítur ekki út fyrir að vera 44, hún er frekar einsog ein af okkur systrunum 
Hrannar á afmæli á Fimmtudaginn hvað á ég að gefa honum, getið þið gefið mér ráð eða nennir einhver með mér í kringluna eða smárann að finna e-ð handa manninum
Við erum að spá í að kíkja í the blue lagon,vá langt síðan við höfum farið þangað, vona að það verði gott veður
Herðu þá er það ekki fleira í bili. Jú við erum að byrja í ungbarnasundi á Mánudaginn, hlakka soldið til, en núna ætla ég að skella inn nokkrum myndum úr afmælinu, þær verða svo hérna til hliðar restinn af þeim

Hrannar að bíða eftir gestunum sem komu allir of seint
Ég að leika e-ð dýr
Ég og Eyrún....
svipur ;)P svona
Lúlli og Ingi sætu

Ég á svo æðislegar vinkonur
Vala bleika
Sunna töffari
Wilsons parið Villi og Eyrún:D
Því miður gleymdum við að taka myndir að fyrripart kvölsins og misstum því af nokkrum aðilum kvöldsins....

Sjáiði svo hvað músin mín er orðin dugleg að sitja ein, samt alltaf gott að hafa nóg af mjúku í kring ;D
LoV jÚ ALL
Unnur Margrét
19maí
Góða kvöldið..... Ok það er ekki ennþá neitt merkilegt að frétta nema ég er ýkt pirruð.. Þvílík frétt :(ég og Hrannar eigum núna að vera í grillveislu en nei þá akkurat þurfti litla skvísan mín að fá hita og ég get ekki farið útúr húsinu þegar hún er lasin , þá líður mér svo illa og get ekki hugsad um neitt annað...
Þannig við þurfum að vera heima en Hrannar er búin að kaupa fullt fullt af nammi og við reynum að hafa það kósý..... 
En hey vissi einhver að það mættu vera 2 á vespu???Akkuru voru þið ekki búin að segja mér það ????.
Ég og Sunna erum búnar að vera með kúkinn í buxunum um að löggan sjái okkur... Eeeeeen NEINEI. Til að byrja með þá mættum við 2 löggum sem voru að stíga útúr bílnum að labba inná Nonna og þær stoppuðu okkur EKKI , vá hvað ég var stressuð.. en svo hugsaði ég ok þeir hafa ekki nennt að standa í því þeir voru kannski svo graðir í Nonna. En svo eftir korter þá kom annar löggubíll og var á eftir okkur heillengi og við að SKÍTA á okkur, ég var alveg byrjuð að plana hvað ég ætlaði að segja við lögguna en hún bara stoppaði okkur ekki,
þannig að það er alveg greinilegt að það er ekki bannað... jibbí
En nóg um þessar vespuferðir okkar,örugglega allir komnir með leið á þeim fyrir löngu síðan...
Í dag fórum við í húsdýragarðinn og tókum Sunnu með , en hún er einsog versta smábarn, vildi sko skoða ÖLL dýrin,hvert eitt og einasta og fara í öll tækin, og svo vildi hún blöðru og allt einsog krakkarnir,ég var semsagt tveggja barna móðir í dag... 
Við skelltum okkur svo bara á Austuvöll og sátum í sólinni og þá alltíeinu breyttist Sunna í voða konu og fékk sér kalt kaffi, það var samt ágætt, en mér hefði bara aldrei dottið það í hug OF konulegt fyrir minn smekk,
Sorry Sunna mín ég veit að ég er að skjóta þig í kaf en svona er þetta bara... 

Ammælið mitt er svo á Föstudaginn,gvuð hvað ég er spennt.. Vona að Aldís verði ekki veik þá.
plííís
I'M OUT
Unnur
I'm so cute ;)